mánudagur, 17. september 2007

pissssssss


gaman gaman. Ég veit ekki hversu oft í þessari deild ég er búin að þurfa að pissa í dollu eða könnu og skoða svo mitt eigið hland. Alltaf jafn áhugavert haha….. manni líður alltaf jafn aulalega þegar maður gengur á klósettið með tómt box og kemur svo til baka með fulla dollu af yndislegu gulu pissi. Þetta var sérstaklega óþæginlegt í fyrra þegar við þurftum að pissa í stærðarinnar könnur fyrir nýrnatilraun. Ég og bekkjarsystir mín þurftum að fara upp á aðra hæð til þess að nota klósettin þar, svo í lyftunni á leiðinni niður var eldri maður samferða okkur. Hann stóð á milli okkar, horfði á okkur stórfruðulegum augum þar sem við stóðum þarna voða vandræðalegar með fullar könnur af pissi eins og ekkert væri sjálfsagðara:D

Engin ummæli: