Þetta var alveg mögnuð helgi. Hún byrjaði á fimmtudeginum með snilldar djammi á Glaumbar. Mér líst bara helvíti vel á Glaumbar sem nýja eftir-vísó-skemmtistað. Þótt það hafi verið vissulega þröng á þingi á tímabili þá redduðum við bara því með því að troðast aðeins;)
Harpa, Vignir, Gunna og ég
Hjörtur og Stefán

Unnur og vinkona hennar
Svo var laugardagurinn alveg magnaður. Ég og Harpa byrjuðum daginn á því að bruna upp í Þjórsárver þar sem við aðstoðuðum við Ástráðsferðina. Ég var svo heppin að fá að sjá um klámvísustöðina hahaha….það var hrein snilld:) Harpa fékk að sjá um hössl leikritin. Við stungum reyndar af áður en aðal veisluhöldin hófust um kvöldið sem tókust víst alveg sérdeilis vel. En svo um kvöldið var þétt dagskrá, 2 partý, tónleikar og svo annað partý.
Tónleikarnir voru æði:) Þetta voru tónleikar með Josh Logan úr Rockstar og honum Magna kallinum. Jeminn eini hvað Josh er mikil dúlla. Hann gaf sér tíma til að tala við alla sem vildu tala við hann. Svo er hann líka bara andskoti góður söngvari;) Vorkenndi þeim samt hvað það var e-ð léleg mæting, en þar sem tónleikarnir voru lítið sem ekkert auglýstir og mikið annað að gerast í bænum á sama tíma er þetta kannski ekkert skrítið. Það eina slæma við tónleikana var að það var alltaf einhver gaur eltandi mig og takandi í hárið á mér og lyftandi því upp að nefinu á sér og lyktandi að því….. fannst það heldur creepy!!
Josh og ég
Josh Logan
(takk fyrir lánið á myndunum Harpa;))

1 ummæli:
já takk fyrir frábæra helgi Bergrós ! Ansi fínar myndirnar mínar ;)
Skrifa ummæli