Það er alltaf jafngaman að eiga afmæli....fullt af gjöfum, allir stjana við mann, fékk alveg ótrúlega mikið af góðum mat í öll mál. Held ég hafi borðað á við 5 hesta þennan dag!
Dagurinn byrjaði alveg yndislega þegar ég fékk óvænta köku í skólanum. Þá var Harpa rúsínumús búin að baka köku fyrir mig í tilefni af afmælinu mínu:) Þú þarft endilega að senda mér myndirnar sem þú tókst þarna Harpa. Svo fékk ég frábæran hádegismat í boði mömmu og pabba ásamt gjöfum, svo sushi um kaffileitið. Svo rændu stelpurnar mér og fóru með mig út að borða! Fékk alveg ótrúlega gott hnetu-osta salat namminamm. Svo var farið heim til mín og fengum okkur eftirrétt og ég fékk enn fleiri gjafir frá stelpunum. Það verður klárlega fondu og póker kvöld bráðum hjá mér skvísur;)
Þakka einnig öllum fyrir allar yndislegu afmæliskveðjurnar og sms-in sem ég fékk:)

